Þetta er búið að vera skrítið tímabil. Væntingarnar fyrir tímabilið voru svona temmilega bjartsýnar eftir lélegt ár á undan og svo endurnýjun á miðsvæðinu. Svo hefur tímabilið verið frábært en allt í einu datt þetta undan okkur og manni líður eins og himinn og jörð séu að farast.
Liðið er en þá að standa sig eiginlega betur en maður átti von á en samt er maður svekktur að nýta ekki tækifærið sem okkur var í boði s.s að Man City hafa oft verið betri en málið er að við höfum líka oft verið betri undri Klopp(væri ekki leiðinlegt að taka 97 stiga tímabil núna og slátra deildinni).
Næst á dagskrá er Atalanta og eftir 0-3 tap á heimavelli eru menn ekki mjög bjartsýnir en það sem maður hefur lært undir stjórn Klopp er að við munum aldrei gefast upp.
ATALANTA
Var stofnað árið 1907 og er þekkt fyrir góðar akademíur. Heimavöllur liðsins tekur c.a 25 þ manns og eru þarna gallharðir stuðningsmenn sem munu taka vel á móti Liverpool mönnum og syngja líklega stanslaust í 90 mín. Þetta er einn af þeirra stærstu leikjum í sögunni.
Atalanta er lið sem á ekki glæsta bikar sögu en þeim tókst þó að vinna Coppa Italia árið 1963 og eru Ítölsku blöðin að tala um þetta sem einn af glæstu sigrum Atalanta og eru nánast búnir að afskrifa Liverpool ( stærri lið en þeir hafa gert það og séð eftir því). Þið verðir að afsaka en mér er svo drullu sama núna um sögu Atalanta ég hef meiri áhyggjur af leiknum sjálfum.
Mér finnst þetta stórskemmtilegt lið og á meðan að maður var að lasta Liverpool liðið þá gat maður eiginlega ekki fundið margt leiðinlegt um þetta Atalanta lið. Þetta er ekki lið sem er með Ítalskan varnarmúr fyrir framan sig heldur spilar það maður á mann vörn sem er ótrúlega hugrökk vörn til að spila þegar liðið mætir liði eins og Liverpool.
Ég veit ekki hvort að þið tókuð eftir því í síðasta leik en Klopp var að leysa maður á mann vörnina með því að færa miðjumennina okkar aftar á völlinn til að færa Atalanta leikmenn framar og svo var það langur á Gakpo eða Nunez sem voru sterkir að halda bolta og næsta skref var þá að keyra á þá 3 á 3 eða 4 á 4. Það sem okkur gekk samt illa var að nýta okkur þessa stöðu betur.
Ef Atalanta halda áfram að spila maður á mann vörn þá bíð ég eiginlega spenntur að sjá hvernig Klopp ætlar að leysa þá stöðu. Er hann að fara að gera svipað en gera það betur eða ætlar hann að breytta alveg til og færa þetta út í en þá meiri geðveiki.
Liverpool
Carragher var að stinga upp á því að spila varaliðinu í þessum leik og er ég 100% ósammála honum. Man City er ekkert að fara að klúðra deildinni úr þessu(við vitum það liða best) og er þetta okkar stærsti möguleiki á titli. Ég vill að við keyrum á þetta frá fyrstu mín.
Saga Liverpool er full af ótrúlegum Evrópukvöldum og af hverju gæti þessi Atalanta leikur ekki verið það líka? Við höfum séð það svartara 0-3 undir gegn AC Milan í hálfleik, 0-3 undir gegn Messi/Suarez Barcelona, 1-3 undir gegn Dortmund og hálftími eftir.
Við erum ekki á Anfield núna en ég tel að leikmenn verða gíraðir í þennan leik frá fyrstu mín og kannski dugar það ekki til en það verður ekki af því að menn voru ekki með 100% trú á verkefnið og selja sig hart fyrir klúbbinn.
Ég held að þetta verður liðið okkar.
Alisson verður í markinu enda okkar sterkasti og verður að fá að spila.
Trent geggjaður sóknarlega og Bradley meiddur svo að við þurfum á honum að halda.
Van Dijk/Konate okkar besta par
Andy er kominn í gang og er þá einn besti vinstri bakvörður í heimi.
Endo sér um að passa okkur varnarlega.
Jones er einn besti pressu kallinn okkar og orkubolti.
Sly er þarna af því að hann getur skapað og hreyf sig.
Mac Allister er auðvitað búinn að vera okkar besti maður undanfarið en hann virkar smá þreyttur en hann gæti klárlega byrjað inn á og þá tel ég að hann verður frekar fyrir Endo(viljum sækja) heldur en hina. Svo gæti Klopp líka sett Gakpo á miðsvæðið og verið með fjóra sóknarmenn inn á en það er kannski óþarfi að byrja á því.
Sóknarlega væri auðvitað ekki vitlaust að spila Gakpo af því að hann virtist vera eini með smá lífi gegn Atalanta í fyrsta leiknum en ég held að Klopp munu bara segja fuck it og keyra á Diaz, Jota og Salah sem allir geta búið til eitthvað upp úr engu.
Nunez gæti líka startað að sjálfsögðu en ég held að hann verður super sup í þessum leik.
Spá
Ætli ég hafi ekki bara verið manna þyngstur á Kop.is spjallinu undanfarið og er ég þá ekki bara að tala um í kg. Gengi Liverpool hefur farið illa í mig og ég sár og svektur yfir því að við séum að klúðra síðasta tímabili Klopp hjá Liverpool.
Það væri því við hæfi að halda þessum pirring áfram og spá 1-2 fyrir Liverpool og úr leik en ég bara nenni því ekki. Ég ætla að spá því að við séum að fara að upplifa alvöru Liverpool evrópu kvöld.
Þetta fer 0-3 fyrir Liverpool eftir 90 mín og svo klárum við þetta í framlegingu 0-4.
Klopp bað okkur nefnilega að breyttast úr efasemdarmönnum í þá sem trúa þegar hann kom og viti menn ég gleymdi því í smá stund. Ég ætla að trú
YNWA
[...]